þriðjudagur, 29. desember 2009

jólin frh.




Posted by Picasa

jólin


Heimasætan reiðubúinn til að fara út í vetrarskóginn að höggva tré


Það reyndist erfiðara en í fyrra að velja tré, þau voru flest öll frekar þungbúin


jólastofan fullkláruð


jólafjölskyldan öll saman komin á aðfangadagskvöld
Posted by Picasa

miðvikudagur, 16. desember 2009

talið niður í jólin


"akkuru akkuru ?"


"my precious"


nýja kerran prufukeyrð- mjög ánægðir eigendur


Norðlenskur grænbjarnahúnn í skóginum í leit að jólatré
Posted by Picasa

miðvikudagur, 9. desember 2009

Rauðhetta og úlfurinn


Sakleysið uppmálað


Úlfurinn sefur vært og grunar ekkert illt


Rauðhetta kemst alveg upp að úlfinum án þess að styggja hann

Rauðhettar tekur úlfinn hálstaki og á hann sér enga von um að sleppa úr þessri klípu


En heppnin er með honum þar sem sterk fjárhúslyktin fælir rauðhettu í burtu og leitar hún sér matar annarstaðar
Posted by Picasa

föstudagur, 4. desember 2009

Það er spurning hversu hollt það er að alast upp með hundum

Posted by Picasa

fimmtudagur, 3. desember 2009

Fjögurra ára uppeldi farið í súginn

Heimasætan hlýðir engu, hversu mikið sem við bönnum henni að mata hundinn. Tommi telur það sitt helsta hlutverk þessa dagana að hreinsa umsvifalaust allt matarkyns sem fellur á gólfið. Sem dæmi um ótrúlegar gáfur hans þá tók hann fljótt eftir því að mestar voru matarleifarnar í kringum erfingjann og sest hann prúður þar við hlið. Þetta hefur þær afleiðingar að matarhald tekur óhemjutíma því hún hefur mikið að segja við hann. Að lokinni máltíð og heimspekilegra pælinga þá þrífur hann stólinn svo ekki er að sjá að þar hafi verið ungabarn að snæðingi.


í djúpum og innihaldsríkum samræðum- Steinunn Birna lætur dæluna ganga og Tómas bíður þolinmóður eftir að eitthvað falli til


"Einn fyrir mig" -gúlp


"og einn fyrir þig "

Annars er allt gott að frétta hér á bæ. Jólin eru komin hjá okkur, með tilheyrandi stórhríð, kulda, kertaljósum og kökubakstri. Tommi greyið þorði ekki út í óveðrir í gær og kúrði bara inni hjá okkur mæðgunum en í dag sveif hann um í snjónum svo eftir var tekið. Ein slæða í kjaftinn og hann hefði sómað sér fullkomlega í klassískri dömubinda auglýsingu.
Steinunn Birna virðist hafa uppgötvað röddina sína og tók sig til í tvo daga og öskraði- frá morgni til kvölds og tíðnin stigmagnaðist. Á sama tíma var hér borin skítur á túnin og það kann enginn jafnvel að meta og prinsinn Tommi sem makar þessu vandlega á alla útlimi, búk og höfuð sitt. Svo hér var öskrandi barn og angandi skítalykt í tvo daga og einu sem ekki kunnu að meta það vorum við hjónin.

jæja segjum þetta gott í bili.


Posted by Picasa

sunnudagur, 29. nóvember 2009

Vola !!


Svona lítur Teigur út í dag. Við erum alveg hæstánægð með allt saman og erum í óða önn að ryðja jólunum inn. Þetta tók tvo mánuði, þrotlausa vinnu, tvo smiði, tvo pípara, einn sparslara og síðast en ekki síst yndislegs frændfólks, vina, nágranna og náttúrulegra bestu foreldra sem hægt er að hugsa sér. Við vonum innilega að við höfum ekki brennt allt þetta góða fólk frá okkur, þau voru nefninlega nokkur símtölin sem maður hálf uppgefin bað um hjálp og það stóð aldrei á því, þau komu brunandi frá Reykjavík til að hjálpa okkur. Ástarþakkir til ykkar mamma, bogi, pabbi, Steini og Birna, Kiddi Kalli og Guðmar ! Okkar frábæru nágrannar og bestu vinir Selma, Ingvi, Gerða, Stebbi, og allir krakkarnir buðu okkur að búa hjá sér á meðan á framkvæmdum stóð- eitthvað sem ekki er hægt að þakka nóg fyrir. Svo náttúrulega þið hin öll sem fylgdust með- hlökkum mikið til að fá ykkur í heimsókn. Risakoss úr hamingjubænum



Posted by Picasa

fimmtudagur, 26. nóvember 2009

fyrstu tvær tennurnar vígðar


Hér sést glitta í fyrstu tvær tennurnar hjá litlu


og hér notar hún þær montin, bryður allan matinn sinn vandlega (jú hún dóttir okkar gerir sér fullkomna grein fyrir að komnar séu tvær tennur og til hvers þær eru- hún er jú svo ofboðslega skýr)
Posted by Picasa

föstudagur, 20. nóvember 2009

Baráttan um hringluna



Tommi kemur auga á enn eitt dótið í eigu Steinunnar Birnu, sem af einhverjum asnalegum ástæðum er ekki handa honum til að leika sér með


Má ekki taka, en kannski má horfa á það, þefa af því, sleikja það, klóra það- nei ekki heldur, meira ruglið!
kvöl og pína fyrir dýrið að vera umkringdur öllu þessu dóti en mega ekki leika

Það náðist ekki að taka mynd af endanum á þessari rimmu en ég get sagt ykkur það með stolti að hún Steinunn Birna hafi vinninginn og sveiflaði hringlunni stolt í hausinn á sér og Tommi fylgdist spenntur með og leikurinn hófst á ný...
Posted by Picasa
Steinunn Birna hefur mikla matarlyst enda þarf hún líklegast mikla orku til að eyða á daginn. Hún er farinn að vagga á fjórum og æfir stíft jafnvægið, svo kannski við verðum komin með skríðandi stúf um jólin.... oh jólin bara að bresta á jih hvað okkur hlakkar til !!


Hakk og spagettí all over

Einbeitingin í hámarki, örugglega ekkert lítið mál að læra að skríða


Sko ! montrassinn
Posted by Picasa